Samfélagsfrumkvöðlar athugið! Sameiginleg fundaröð MERSE
MERSE er NPA verkefni sem Vestfjarðastofa er þátttakandi í og snýr það að samfélagslegri nýsköpun í dreifðum byggðum.
Vestfjarðastofa í samvinnu við Galdrasýninguna, Skriðu og Netagerðina standa fyrir samkomum á öllum þremur svæðum Vestfjarða sem hér segir:
Hólmavík – Galdrasýning - mánudaginn 12. maí
Patreksfjörður – Skriða - þriðjudaginn 13. maí
Ísafjörður – Netagerðin - miðvikudaginn 14. Maí
Allar samkomurnar byrja kl. 16:30 og lýkur þeim kl.18:30
Dagskráin samanstendur af fræðslu um samfélagslega nýsköpun og MERSE-verkefnið. Jafnframt því sem Anna Björg á Galdrasýningunni, Birta í Skriðu og Heiða í Netagerðinni leiða skemmtilega vinnu með samfélagsfrumkvöðlum og öðrum gestum.
Kaffiveitingar
Öll velkomin – en þau sem fást við samfélaglega nýsköpun eru sérstaklega hvött til að mæta.
Vinsamlegast skráið þátttöku á meðfylgjandi formi