Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviði ráðherra. Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga. Styrkjum er úthlutað samkvæmt reglum sem finna má hér að neðan.
Ávallt er hægt að sækja um styrki úr Örvari. Umsóknir skulu berast rafrænt á umsóknareyðublaði sem nálgast má á minarsidur.mnh.is. Úthlutað er úr Örvari þrisvar sinnum á ári, að jafnaði í apríl, ágúst og desember. Umsóknir þurfa að berast fyrir lok hvers mánaðar á undan úthlutunarmánuði. Umsóknarfrestur fyrir úthlutun í apríl 2025 er til og með 10. apríl. Ráðherra tekur lokaákvörðun um styrkveitingar. Svarbréf eru send til umsækjenda í kjölfarið.
Ráðherra getur ákveðið að leggja áherslu á ákveðin mál á verkefnasviði ráðuneytisins þegar kemur að úthlutun styrkja. Slíkar áherslur eru auglýstar sérstaklega.
Styrkir úr Örvari eru ætlaðir þeim verkefnum sem ekki teljast styrkhæf annars staðar og eru ekki styrkt með öðrum hætti. Að jafnaði eru styrkir eingöngu veittir til verkefna sem ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Ekki eru veittir rekstrarstyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til B.A./B.S. eða meistaraprófa.
Samkvæmt úthlutunarreglum mun matshópur skipaður af ráðherra meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið má finna í úthlutunarreglum.
Hámarksupphæð styrks sem verkefni getur hlotið er 1.500.000 kr.
Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna hér