Fyrir hverja?
Leikskólastjóra, skólastjóra eða skólameistara fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.
Til hvers?
Styrkja verkefni sem stuðla að þróun og nýjungum í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er einu sinni á ári.
Umsóknarfrestur er 15. febrúar 2024 klukkan 15:00
- Opið fyrir umsóknir:
- Innskráning
- Leiðbeiningar
Hvert er markmiðið?
Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda (menntastefna til ársins 2030) og aðalnámskrá, samkvæmt 15. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 34. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 53. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.
Til sjóðsins renna fjármunir sem veittir eru á fjárlögum hverju sinni. Nánar má sjá um hlutverk sjóðsins í reglugerð hans Nr. 242/2009.
Hvað er styrkt og áherslusvið árið 2024?
Þróunarverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Áherslusvið sjóðsins fyrir árið 2024 eru:
- Farsæld barna og ungmenna, með áherslu á umburðarlyndi, fjölbreytileika og inngildingu nemenda.
- Teymiskennsla og samstarf.
Hvað er ekki styrks?
- Ekki eru veittir styrkir til kjarnastarfsemi eða reglubundins reksturs.
- Að jafnaði eru ekki veittir styrkir til tækjakaupa eða uppbyggingu aðstöðu nema að takmörkuðu leiti ef verkefni eru háð því og ljóst þyki að sá kostnaður falli ekki undir kjarnastarfsemi eða reglubundinn reksturs.
- Almennt á námsgagnagerð betur heima í Þróunarsjóði námsgagna.
Hverjir geta sótt um?
Leikskólastjórar, skólastjórar og skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstaka kennara. Aðrir aðilar geta einnig sótt um en þurfa þá að skila inn staðfestingu á þátttöku skóla með umsókn.
Skilyrði úthlutunar
Sjá matskvarða Sprotasjóðs. Samkvæmt 6. grein reglugerðar um Sprotasjóð leik-,grunn- og framhaldsskóla skal mat á umsóknum einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:
- gildi og mikilvægi verkefnis með tilliti til hlutverks Sprotasjóðs,
- verkefni feli í sér þróunarstarf innan skóla, samstarf milli skóla eða skólastiga,
- verkefnið falli að þeim áherslum eða áherslusviðum er fram koma í auglýsingu,
- líkum á því að umsækjanda/umsækjendum takist að ná þeim markmiðum er verkefnið miðar að,
- starfsferli og faglegum eða fræðilegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda m.t.t. þeirra krafna sem verkefnið gerir til þeirra.