Fara í efni

Forvitnir frumkvöðlar - Umsóknarskrif

Annað erindi í fyrirlestraröð landshlutasamtakanna, Forvitnir frumkvöðlar, fer fram á Teams þriðjudaginn 4. febrúar kl. 12. Þar mun Þórunn Jónsdóttir fara yfir gerð styrkumsókna, en hún hefur skrifað yfir 300 umsóknir yfir dagana. Markmið Þórunnar er að deila þekkingu sinni og reynslu sem víðast, enda trúir hún því að allir geti skrifað árangursríka styrkumsókn fái þeir til þess góðan stuðning og réttu tólin.

Fundurinn verður haldinn á TEAMS og er hægt að skrá sig á með því að smella hér. Einnig er hægt að finna viðburðinn á Facebook og hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta og deila þessu áfram til áhugasamra frumkvöðla.

Sjáumst á TEAMS þriðjudaginn 4. febrúar kl. 12.

Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna
- Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
Landshlutasamtökin: Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofa standa að mánaðarlegum fræðsluerindum fyrsta þriðjudag í mánuði. Fjölbreytt fræðsla í boði fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Fræðsluhádegin eru öllum opin og að kostnaðarlausu! ✍️Nauðsynlegt er að skrá sig til að fá fundarboð.
Erindin verða haldin á Teams og hefjast þau kl.12. Ráðgert að hvert erindi verði ekki lengra en 45 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst kostur á að leggja fram spurningar.
 
Við höldum svo áfram í september með fleiri spennandi fyrirlestra.
 
Hvað eru landshlutasamtökin?
Öll sveitarfélög á Íslandi eru aðilar að landshlutasamtökunum, en Landshlutasamtök sveitarfélaga eru hagsmunasamtök sveitarfélaga á tilgreindum starfssvæðum. Meginhlutverk allra landshlutasamtaka er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.