Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum - frestur til 13. júní 2014
Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga og er frestur til að sækja um til og með 13. júní 2014. Styrkir verða veittir í tveimur flokkum, annars vegar stofn- og rekstrarstyrkir og hins vegar verkefnastyrkir. Tilgangurinn er að efla menningarstarfsemi á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli. Umsækjendum er bent á að kynna sér vandlega úthlutunarreglur undir tenglunum Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir hér til hliðar og undir þeim tengli má einnig nálgast eyðublöð, bæði á word-formi og rafræn.
22. maí 2014