NORA-styrkir auglýstir til umsóknar
Byggðastofnun hefur kallað eftir umsóknum í NORA-styrki.Styrkt eru samstarfsverkefni milli a.m.k.tveggja NORA-landa; Íslands, Grænlands, Færeyja og strandsvæða Noregs.Styrkirnir geta numið allt að 500.000 dönskum krónum eða rúmar 9 milljónir íslenskra króna.
Þessi svið eru helst styrkt:
Skapandi greinar
Græn orka
Lífhagkerfi
Sjálfbær ferðaþjónusta
Upplýsinga- og fjarskiptatækni
Velferðarþjónusta
Öryggismál/viðbúnaður á hafi
Hér má finna nánari upplýsingar um styrkina.
18. febrúar 2019