Velheppnaður súpufundur með ferðaþjónustuaðilum
Þann 17.apríl stóð Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Markaðsstofa Vestfjarða fyrir súpufundi með ferðaþjónustuaðilum.Góð mæting var á fundinn, en tæplega 30 ferðaþjónar mættu og ræddu málefni greinarinnar.
Góðar umræður sköpuðust um sýn ferðaþjóna á markaðssetningu Vestfjarða og rætt var hvaða verkefni væru brýnust í þeim málum.
22. apríl 2013