Töfruðu fram dýrindis kræsingar úr vestfirskum laxi
Kokkanemar úr Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi lögðu í vikunni leið sína á Bíldudal þar sem þeirra beið það spennandi verkefni að reiða fram dýrindis kræsingar úr vestfirskum laxi. Það var Arnarlax sem stóð fyrir viðburðinum, bæði til að kynna fyrir hinum ungu matreiðslumönnum hráefni sitt og kynna fyrir heimafólki þann gæðamat sem má gera úr því.
11. október 2023