Kynningarfundur með Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi
Mánudaginn 15. október fá íbúar á norðanverðum Vestfjörðum tækifæri á því að sækja fundi með umhverfisstjórnunarfræðingnum Stefáni Gíslasyni. Mun hann halda tvo fundi á Ísafirði og einn fund í Bolungarvík en sá fundur er fyrir kjörna fulltrúa á svæðunum.
Í hádeginu 15. október milli kl. 12:00 og 13:00 gefst fyrirtækjum og opinberum stofnunum kostur á að senda fulltrúa sinn til að sitja súpufund á Hótel Ísafirði og hlusta á erindi Stefáns er ber heitið „Úrgangur er auðlind“.
Almennur íbúafundur verður svo haldinn sama dag í sal Stjórnsýsluhúsins á Ísafirði kl. 16:30. Þar mun Stefán fjalla um sama efni og einnig koma inn á loftslagssamning Íslands og hvernig íbúar geta komið að því markmiði.
12. október 2018