Yfirsálfræðingur - Heilbrigðisstofun Vestfjarða
eilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir til umsóknar stöðu yfirsálfræðings á heilsugæslu. Starfinu er skipt á milli geðheilsuteymis stofnunarinnar og þjónustu við börn. Aðalstarfsstöð hefur verið á Ísafirði en gert er ráð fyrir að sálfræðingur veiti þjónustu tvo til þrjá daga í mánuði á Patreksfirði. Unnið er að því að geðheilbrigðisþjónusta verði í boði í öllu umdæmi stofnunarinnar, meðal annars með fjarheilbrigðisþjónustu og kemur til greina að sálfræðingur vinni að hluta eða öllu til í fjarvinnu. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu.
08. febrúar 2022