Opinn kynningarfundur um Þjóðleik á Vestfjörðum
Þjóðleikur á Vestfjörðum er skemmtilegt leikhúsverkefni fyrir ungt fólk, kjörið fyrir leikfélög, skóla eða vinahópa. Opinn kynningarfundur um verkefnið verður haldinn á Skrifstofuhótelinu í Neista á Ísafirði mánudaginn 17. desember kl. 18:00.Hópar geta ennþá skráð sig til leiks í Þjóðleik á Vestfjörðum. Hægt er að velja úr þremur skemmtilegum nýjum 40 mín. leikritum og hver hópur setur upp og sýnir sitt leikrit sjálfstætt. Til að setja upp sýningu :) það þarf minnst 8 ungmenni á aldrinum 13-20 ára og svo þarf að vera einn eða tveir eldri stjórnendur og ábyrgðarmenn. Síðan hittast hóparnir á lítilli leiklistarhátíð á Ísafirði í vor, ef nógu margir hópar taka þátt.
13. desember 2012